Hlynur rekinn út úr húsi og Sundsvall tapaði fyrsta leiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. apríl 2011 15:54 Hlynur Bæringsson Mynd/Valli
Hlynur Bæringsson var rekinn út úr húsi í fyrsta leik úrslitaeinvígis Sundsvall Dragons og Norrköping Dolphins um sænska meistaratitilinn í dag. Sundsvall tapaði leiknum með einu stigi á heimavelli sínum, 78-79, eftir að hafa verið í mjög góðri stöðu til að vinna leikinn á lokakaflanum. Hlynur var með 14 stig, 8 fráköst og 2 stoðsendingar í leiknum en Jakob Sigurðarson var með 11 stig, 4 fráköst og 3 stoðsendingar. Sundsvall byrjaði leikinn skelfilega, Norrköping skoraði átta fyrstu stigin, komst í 17-3 og 20-7 og staðan var síðan 20-10 fyrir Norrköping-liðið eftir fyrsta leikhlutann. Norrköping var síðan 25-12 yfir þegar átta mínútur voru til hálfleiks en þá átti Hlynur Bæringsson mikinn þátt í að koma Sundsvall aftur inn í leikinn. Sundsvall vann sex mínútna kafla 20-5 og Hlynur skoraði 10 af þessum stigum. Sundsvall var þremur stigum yfir í hálfleik, 39-36, og komst síðan átta stigum yfir í upphafi seinni hálfleiks með því að skora fimm fyrstu stigin í þriðja leikhlutanum. Norrköping átti góðan endasprett í þriðja leikhlutanum og minnkaði muninn í tvö stig 58-56, fyrir lokaleikhlutann. Stóri dómur leiksins kom síðan í upphafi fjórða leikhlutans. Hlynur var þá rekinn út úr húsi í stöðunni 64-61 þegar sjö mínútur voru eftir. Það var mjög skrýtinn dómur enda sparkaði Bandaríkjamaðurinn George Gervin í andlitið á Hlyn eftir að þeir lentu báðir í gólfinu. Gervin var líka rekinn útaf en Hlynur var væntanlega ósáttur með að þurfa að fara sömu leið. Það á eftir að koma í ljós hvort þetta þýði leikbann fyrir Hlyn eða hvort hann geti spilað næsta leik. Leikmenn Sundsvall náðu í kjölfarið sjö stiga forskoti, 74-67, en Norrköping kom strax til baka og lokamínúturnar voru síðan æsispennandi. Jakob klikkaði á þremur skotum á lokakaflanum sem reyndist á endanum vera dýrkeypt. Anton Saks tryggði Norrköping síðan eins stigs sigur 14 sekúndum fyrir leikslok þegar hann skoraði eftir sóknarfráköst. Sundsvall tókst ekki að nýta síðustu sóknina sína og Norrköping fagnaði sigri.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira