Handbolti

Sigur í fyrsta leik hjá Ágústi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rakel Dögg átti fínan leik fyrir Ísland.
Rakel Dögg átti fínan leik fyrir Ísland.
Ágúst Þór Jóhannsson byrjaði vel með kvennalandslið Íslands í handbolta í dag er það lagði Tyrkland, 27-25, í vináttulandsleik ytra.

Tyrkir leiddu i hálfleik, 14-10, en íslenska liðið kom öflugt inn í síðari hálfleikinn og vann góða sigur.

Mörk Íslands:  Hanna G. Stefánsdóttir 6, Karen Knútsdóttir 5, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 4, Rakel Dögg Bragadóttir 4, Stella Sigurðardóttir 3, Þórey Rósa Stefánsdóttir 2, Ásta Birna Gunnarsdóttir 1, Elísabet Gunnarsdóttir 1 og Arna Sif Pálsdóttir 1.

Íris Björk Símonardóttir varði 19 skot í íslenska markinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×