Handbolti

AGK á leiðinni í Legoland

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þegar bandarísk lið lyfta meistaratitli þá er hefðin að fara í Disney-land. Í Danmörku fara menn í Legoland.

Nýkrýndir Danmerkurmeistarar í handbolta, AG Köbenhavn, mun fara í skrúðgöngu í Legolandi þann 27. ágúst næstkomandi.

Það er íþróttavöruframleiðandinn Hummel sem skipuleggur viðburðinn.

"Það hefur verið spennandi að fylgjast með uppgangi þessa félags og við erum stolt af því að kynna þessa frábæru leikmenn í Legolandi. Þetta á eftir að vera mikil upplifun fyrir börnin," sagði Henrik Höhrmann hjá Legolandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×