Handbolti

Umfjöllun: Ísland tapaði naumlega gegn silfurliði Svíþjóðar

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Rakel Dögg Bragadóttir, leikmaður Íslands.
Rakel Dögg Bragadóttir, leikmaður Íslands.
Silfurlið Svíþjóðar frá EM í handbolta í desember marði íslenska kvennalandsliðið 23-24 í æfingaleik þjóðanna í Vodafonehöllinni í kvöld í hörkuleik.

Svíar byrjuðu leikinn mjög vel og mættu ákveðnar til leiks eftir að þjálfari þeirra hafði haft af þeim fer á Þingvelli vegna slakrar frammistöðu í fyrri leik liðanna á sunnudaginn. Ágúst Jóhannsson svaraði góðri byrjun Svía með því að taka leikhlé í stöðunni 6-2 eftir tæplega 12 mínútna leik og þá hrökk íslenska liðið í gang. Ísland gerði mörg mistök í sókninni í upphafi en náði að róa leik sinn og fá betri sóknir auk þess sem liðið náði að þétta vörnina. Ísland náði því að minnka muninn í eitt mark fyrir leikhlé 11-12.

Jafnræði var með liðunum allan seinni hálfleikinn og skiptust liðin á að leiða með einu marki en aðeins einu sinni munaði meira en einu marki á liðunum í hálfleiknum, í stöðunni 15-17 Svíum í vil um miðbik hálfleiksins. Ísland komst yfir 23-22 þegar tvær mínútur voru til leiksloka en Svíar skoruðu tvö síðustu mörk leiksins og tryggðu sér sigur.

Ísland mætir Úkraínu í næstu viku í umspili um laust sæti á HM í Brasilíu og getur farið fullt sjálfstrausts í þá leiki eftir tvo góða leiki gegn Svíþjóð. Stígandi var í leik liðsins á milli leikja og náðu Ágúst Jóhannsson og Einar Jónsson að bæta margt í leik liðsins frá fyrri leik liðanna á sunnudaginn. Tæknifeilar í sókninni voru mun færri og liðið lék mikið betur í stöðunni einum fleiri. Það er því full ástæða til þess að fara bjartsýn inn í leikina gegn Úkraínu og rétt að árétta við handboltaáhugafólk að fylla Vodafonehöllina á sunnudaginn í heimaleik Íslands.

Mörk Íslands:

Rakel Dögg Bragadóttir 6

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4

Karen Knútsdóttir 3

Rut Jónsdóttir 2

Stella Sigurðardóttir 2

Þórey Rósa Stefánsdóttir 1

Rebekka Rút Skúladóttir 1

Brynja Magnúsdóttir 1/1

Ásta Gunnarsdóttir 1

Hrafnhildur Skúladóttir 1

Hanna Guðrún Stefánsdóttir 1

Varin skot:

Guðrún Ósk Maríasdóttir 9

Guðný Jenný Ásmundsdóttir 1








Fleiri fréttir

Sjá meira


×