Handbolti

Ciudad Real færist nær Madrid

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafur Stefánsson lék lengi með Ciudad Real.
Ólafur Stefánsson lék lengi með Ciudad Real.
Spænska handboltastórveldið Ciudad Real mun að öllum líkindum flytja til Madrid á næstu vikum. Ekki tókst að safna nægu fé til þess að halda liðinu í Ciudad.

Félagið hafði gefið sér tíma til mánaðarmóta til þess að ganga frá málum við styrktaraðila en þær viðræður gengu ekki upp.

Því er lítið annað í stöðunni fyrir félagið annað en að flytja sig um set.

Þegar er byrjað að vinna í formlegri pappírsvinnu svo hægt verði að flytja félagið sem var ekki óskastaða eiganda félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×