Handbolti

Ólafur skoraði fjögur mörk í sigri Nordsjælland

Ólafur Guðmundsson.
Ólafur Guðmundsson.
Ólafur Guðmundsson og félagar í danska liðinu Nordjsælland komust í dag áfram í EHF-bikarnum í handbolta.

Nordsjælland lagði tékkneska liðið Dukla Prag, 27-25, og samanlagt 58-49.

Ólafur lék vel fyrir danska liðið og skoraði fjögur mörk. Hann er í láni hjá félaginu frá AGK.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×