Veigar Páll lagði upp tvö mörk og Vålerenga komst í annað sætið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. október 2011 18:55 Veigar Páll Gunnarsson. Mynd/Vilhelm
Veigar Páll Gunnarsson lét ekki fjarðafokið í kringum sölu hans til Vålerenga hafa áhrif á sig þegar hann fór fyrir sínu liði í 3-0 heimasigri á Viking í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Veigar Páll bjó til tvö fyrstu mörk Vålerenga í leiknum en með þessum sigri komst liðið upp fyrir Rosenborg og upp í annað sætið deildarinnar en Molde hefur enn átta stiga forskot og á titilinn vísan. Veigar Páll lagði upp tvö mörk í fyrri hálfleiknum, það fyrra fyrir Bojan Zajic á 7. mínútu og það síðara fyrir Morten Berre á 44. mínútu. Bojan Zajic innsiglaði síðan sigurinn með því að skora sitt annað mark úr vítaspyrnu á 80. mínútu. Veigar Páll hefur þar með lagt upp tíu mörk í norsku úrvalsdeildinni í sumar og er nú í efsta sætinu á þeim lista ásamt Thomas Drage hjá Tromsö. Veigar Páll hefur auk þess skoraði 12 mörk sjálfur. Birkir Bjarnason lék allan leikinn á miðju Viking-liðsins og Indriði Sigurðsson var allan tímann í miðri vörninni en Viking-liðið er nú í 11. sæti deildarinnar.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport McGregor fær ekki keppinaut fyrr en hann er leikfær á ný Sport „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn Norris á ráspól í Singapúr Formúla 1 Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Handbolti „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Enski boltinn Setja pressu á Barcelona með sigri Fótbolti Fleiri fréttir „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ Jafnt hjá PSG og Galatasaray vann stórleikinn í Tyrklandi Setja pressu á Barcelona með sigri Sjáðu mark Brynjars Inga og stoðsendingu Viðars Ara „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ Þriðja markalausa jafntefli Juventus í röð „Það hlaut að koma að því“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Rúnar Þór lagði upp og setti boltann í eigið net Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Bayern búið að skora tuttugu mörk í síðustu þremur leikjum Selfoss og KFA mætast í úrslitum Ásdís Karen skoraði í þriðja sigri Lillestrøm í röð Sjö KR-ingar heiðraðir á Anfield Orri í byrjunarliði Real Sociedad sem mistókst enn og aftur að skora Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Lið Ísaks og Valgeirs bjargaði stigi á dramatískan hátt Endurkoma hjá Dagnýju „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Sjá meira