Handbolti

Aron Pálmarsson: Vinnum AG ef við spilum okkar leik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Aron Pálmarsson var í viðtali hjá HBOLD.dk í tilefni af því að Aron og félagar hans í THW Kiel taka á móti dönsku meisturunum í AG Kaupmannahöfn í Meistaradeildinni á sunnudaginn. AG er í efsta sæti riðilsins einu stigi á undan Kiel. 

„Þeir eru að spila virkilega vel þessa dagana og það eru margir góðir leikmenn í þeirra liði. Þetta verður án efa erfiður leikur á móti toppliðinu í riðlinum en auðvitað viljum við taka af þeim toppsætið," sagði Aron.

Aron var síðan spurður út í það hvaða leikmenn THW Kiel þurfi að leggja áherslu á að stoppa í leiknum á sunndaginn en það er þegar orðið uppselt í Sparkassen-Arena í Kiel.

„Horfið bara á liðið þeirra. Hansen, Stefánsson, Sigurðsson og Atlason eru bara nokkrir af heimsklassamönnum í þeirra liði. Markvörðurinn þeirra er líka frábær. Ég er samt viss um að við vinnum þennan leik ef við spilum okkar leik," sagði Aron.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×