Handbolti

Onesta og Dagur berjast um efsta sætið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlin.
Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlin. Nordic Photos / Getty Images
Nú stendur yfir kosning um þjálfara ársins á vefsíðunni handball-planet.com. Sem stendur eru þeir Claude Onesta og Dagur Sigurðsson að berjast um efsta sætið.

Onesta, þjálfari heims-, Evrópu- og Ólympíumeistara Frakklands, er sem stendur í efsta sætinu með 42,85 prósent atkvæðanna en Dagur, sem náði frábærum árangri með Füchse Berlin á árinu, er í öðru sæti með 37,86 prósent.

Alls eru sex þjálfara tilnefndir og er Alfreð Gíslason hjá Kiel í fimmta sætinu með 3,17 prósent. Hinir sem eru tilnefndir eru Ulrik Wilbek, Xavi Pascual og Martin Schwalb.

Kosningin er opin til 3. janúar og má taka þátt í henni hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×