Jón Arnór: Ég hélt að krossböndin hefðu farið hjá mér Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. janúar 2011 07:00 Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Valli
Jón Arnór Stefánsson meiddist illa á hné í síðasta leik CB Granada á árinu og mun af þeim sökum missa af tveimur fyrstu mánuðum ársins 2011. Jón Arnór spilar stórt hlutverki í liðinu, sem sést vel á því að liðið steinlá með 27 stiga mun og skoraði aðeins 57 stig í fyrsta leiknum án hans í gær. „Það er töluvert sjokk að lenda í þessu en þetta hefði getað verið verra. Ég slepp alveg við uppskurð og það er klárlega jákvæði hlutinn við þetta. Ég hélt að krossböndin hefðu farið hjá mér. Ég fann hnykk í hnénu en sem betur fer héldu þau einhvern veginn," sagði Jón Arnór. „Einn af stóru strákunum í hinu liðinu datt á löppina á mér. Það var verið að stíga hann út og hann datt beint aftur fyrir sig og á mig. Við það rifnar liðbandið að innanverðu og liðþófinn skaddast líka. Þetta er samt sá hluti af liðþófanum sem grær af sjálfu sér og það þurfti ekki aðgerð þar heldur. Það var mikið lán í óláni," segir Jón Arnór en viðurkennir að hann hefur verið óheppinn með meiðsli síðan hann kom út til Granada.Jón Arnór Stefánsson.Mynd/Heimasíða Granada„Það er frekar stutt síðan ég lenti í bakmeiðslunum og þetta er algjör óheppni. Þetta var ekki eins og ég hefði stigið vitlaust í löppina sjálfur og rifið þetta heldur var þetta eitthvað sem ég lendi í. Þetta er frekar pirrandi en hvað getur maður gert? Þetta er bara hluti af þessu og maður styrkir sig bara og kemur góður til baka," segir Jón Arnór. Jón Arnór felur samt ekki pirring sinn út í aðgerðaleysi forráðamanna félagsins. Granada hefur aðeins unnið 3 af fyrstu 14 leikjum sínum og situr í botnsæti deildarinnar. „Ég orðinn svolítið pirraður á þessu. Raunveruleikinn er sá að við erum í neðsta sæti og það þarf heldur betur að breyta einhverju til þess að við getum farið að vinna einhverja leiki. Okkur sárvantar leikmenn og það hefur verið þannig hjá okkur í síðustu leikjum," segir Jón Arnór en að hans mati hafa stóru strákarnir í liðinu verið hrikalega daprir. „Maður er ekkert rosalega bjartsýnn en þeir hljóta að fara að gera einhverjar breytingar og bæta við leikmönnum. Það þarf að gera það til þess að reyna að bjarga þessu en ef ekki þá er ekkert rosalega spennandi að vera hérna áfram," sagði Jón Arnór að lokum.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Sögulegur dagur er Thelma sópaði til sín gullverðlaunum Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira