Handbolti

Arnór markahæstur í enn einum sigri AGK

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Álaborgar tóku hraustlega á Arnóri sem fór mikinn.
Leikmenn Álaborgar tóku hraustlega á Arnóri sem fór mikinn.

Íslendingaliðið AG Köbenhavn er enn á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir fínan útisigur á AaB, 26-31.

Ingimundur Ingimundarson spilar með liði AaB en þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Arnór Atlason eru í herbúðum AGK.

Arnór var markahæstur í liði AG með 6 mörk og Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 3 mörk. Stórskyttan Mikkel Hansen lét sér eitt mark duga að þessu sinni.

AGK er með sjö stiga forskot á toppnum en Ingimundur og félagar eru aðeins í sjötta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×