Formúla 1

Ferrari frumsýndi 2011 keppnisbílinn

Luca Montezemolo, forseti Ferrari við nýja Ferrari keppnisbílinn á frumsýningu Ferrari í dag.
Luca Montezemolo, forseti Ferrari við nýja Ferrari keppnisbílinn á frumsýningu Ferrari í dag. Mynd. AFP
Ferrari frumsýndi í dag nýjan Formúlu 1 bíl sem kallast Ferrari F 150 og verður ekið af Fernando Alonso og Felipe Massa á keppnistímabilinu, en 20 mót verða á dagskrá í ár. Fyrsta mótið er í Barein í mars. Frumsýningin var í Maranello á Ítalíu, í höfuðstöðvum Ferrari. Ferrari frumsýndi í dag nýjan Formúlu 1 bíl sem kallast Ferrari F 150 og verður ekið af Fernando Alonso og Felipe Massa á keppnistímabilinu, en 20 mót verða á dagskrá í ár. Fyrsta mótið er í Barein í mars. Frumsýningin var í Maranelli á Ítalíu, í höfuðstöðvum Ferrari. Stefano Domenicali framkvæmdarstjóri Ferrari segir að keppnisliðið hafi verið endustkipulagt hvað mannskap varðar og að Alonso og Massa séu mjög einbittir og klárir í slaginn fyrir komandi tímabil. Hvað helstu keppinauta Ferrari sagði Domenicali; "Við verðum að reikna með öllum í byrjun og stóru liðin verða mjög, mjög sterk, Red Bull, Mercedes og McLaren. Það verða önnur lið sem veða skeinuhætt og við skulum ekki gleyma frábærum ökumönnunum. Það eru margir heimsmeistarar og það verður heitt í kolunum." Nýjar reglur verða í gildi á þessu ári og eiga sumar að auka möguleika á framúrakstri. "Ég vill vera varkár varðandi þetta, en það er ljóst að allt hefur verið gert, t.d. varðandi hreyfanlegan afturvæng til að auka möguleika á framúrakstri. Það mun taka nokkur mót til að fínstilla þetta kerfi, en það er markmið að auka skemmtanagildið", sagði Stefano Domenicali.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×