Handbolti

Hansen þreyttur eftir HM

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mikkel Hansen.
Mikkel Hansen.

Markahæsti leikmaður HM í Svíþjóð, Daninn Mikkel Hansen, var ólíkur sjálfum sér er lið hans, AGK, mætti AaB í gær.

Hansen skoraði aðeins eitt mark í leiknum og þótti orkulaus. Hann tók undir það.

"Þetta var ekki nógu gott en leikirnir tíu á HM tóku sinn toll," sagði Hansen en Arnór Atlason var talsvert ferskari en Hansen og skoraði sex mörk úr skyttustöðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×