Handbolti

Fimm tilnefndir í vali handboltamanns ársins

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mikkel Hansen.
Mikkel Hansen. Nordic Photos / Getty Images
Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, hefur gefið út hvaða fimm leikmenn hafa verið tilnefndir í árlegu vali á handboltamanni ársins.

Filip Jicha frá Tékklandi og leikmaður Kiel í Þýskalandi varð fyrir valinu í fyrra og er aftur tilnefndur nú. Þar að auki eru þrír franskir handboltamenn tilnefndir sem og hinn danski Mikkel Hansen.

Í kvennaflokki eru tveir Norðmenn tilnefndir en liðið varð heimsmeistari í Brasilíu í síðasta mánuði.

Tilnefndir í karlaflokki:

Mikkel Hansen (Danmörku)

Nikola Karabatic (Frakklandi)

Thierry Omeyer (Frakklandi)

Filip Jicha (Tékklandi)

Luc Abalo (Frakklandi)

Tilnefndir í kvennaflokki:

Katrine Lunde Haraldsen (Noregi)

Alison Pineau (Frakklandi)

Heidi Loke (Noregi)

Andrea Penezic (Króatíu)

Andrea Lekic (Serbíu)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×