Handbolti

Guðjón og Snorri flottir með nýju greiðslurnar

Strákarnir flottir og kátir með nýju greiðslurnar.
Strákarnir flottir og kátir með nýju greiðslurnar. mynd/AG
Eins og fram kom á Vísi í gær þá töpuðu þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson veðmáli á æfingu sem leiddi til þess að þeir þurfa að skarta skrautlegri hárgreiðslu í tveimur leikjum.

Þeir félagar frumsýndu nýju greiðslurnar í gær þegar AG marði eins marks sigur á SönderjyskE.

Guðjón Valur er orðinn svarthærður en Snorri Steinn er með svokallaða ananasgreiðslu á toppi kollsins.

Þeir eiga einn leik eftir áður en greiðslan fær að fjúka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×