Handbolti

Rut búin að framlengja við Holstebro

Hin 21 árs gamla landsliðskona, Rut Jónsdóttir, er búinn að framlengja samningi sínum við danska liðið Team Tvis Holstebro um tvö ár.

Rut hefur verið hjá félaginu síðan hún var 17 ára eða í fjögur ár.

"Mér líður vel hjá þessu félagi og tel mig geta haldið áfram að vaxa sem leikmaður hér. Við erum líka á toppnum í deildinni, að keppa í Evrópukeppni þannig að það er ekki yfir neinu að kvarta," sagði Rut.

"Það er frábært að vera toppnum. Við viljum fara að vinna titla. Höfum verið nálægt því og erum orðnar mjög hungraðar í titil."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×