Handbolti

Snorri Steinn tryggði AG dramatískan sigur

Mynd/Heimasíða AG
Íslendingaliðið AG lenti í miklum vandræðum með Nordsjælland í kvöld en marði að lokum eins marks sigur, 24-23.

AG var með öll tök á leiknum framan af og leiddi í hálfleik með sex mörkum, 15-9. Sóknarleikur AG hrundi í síðari hálfleik og skoraði liðið aðeins þrjú mörk á fyrstu 18 mínútunum og Nordsjælland náði að jafna, 18-18.

Það var síðan Snorri Steinn Guðjónsson sem tryggði AG sigurinn með marki 33 sekúndum fyrir leikslok.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×