Handbolti

Guðjón Valur skoraði 13 mörk í góðum sigri AG

Guðjón Valur.
Guðjón Valur.
Íslendingaliðið AG fór á kostum í danska handboltanum í dag er það vann flottan sex marka útisigur, 27-33, á Skjern.

Guðjón Valur Sigurðsson, Mikkel Hansen og markvörðurinn Kasper Hvidt voru allir í heimsklassa í leiknum að því er fram kemur á heimasíðu AG.

AG var með tökin á leiknum allan tímann og náði fljótt fimm marka forskoti, 7-2. Skjern kom til baka og jafnaði, 9-9, en AG leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, 15-13.

Leikmenn AG stigu á bensínið í síðari hálfleik, komust í 19-14 og litu aldrei til baka.

Guðjón Valur fór hamförum í leiknum og skoraði 13 mörk. Hansen var með 8 og Hvidt varði meðal annars fjögur vítaköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×