Handbolti

Kjelling tekur þátt í úrslitakeppninni í Katar

Kjelling í leik með Norðmönnum.
Kjelling í leik með Norðmönnum. nordicphotos/afp
Norski landsliðsmaðurinn Kristian Kjelling er staddur þessa dagana í Katar þar sem hann leikur í úrslitakeppni deildarinnar.

Hann spilar með Al Ahli en hefur þá ekki yfirgefið herbúðir Álaborg heldur var hann lánaður til félagsins í tíu daga meðan á úrslitakeppninni stendur.

Kjelling mun moka inn seðlum þessa daga í Katar en það er algengt að liðin þar í landi styrki sig fyrir úrslitakeppnina með sterkum mönnum og borgi fáranlegar upphæðir fyrir.

"Ég tek þetta inn á reynslubankann að spila við svona sérstakar aðstæður," sagði Kjeling sem átti stórleik í gær er Al Ahli vann sinn leik í undanúrslitunum.

Undanúrslitin fara fram á morgun og úrslitin um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×