Körfubolti

Jakob framlengir við Sundsvall

Jakob í leik með Sundsvall.
Jakob í leik með Sundsvall. mynd/valli
Landsliðsmaðurinn Jakob Örn Sigurðarson er búinn að skrifa undir nýjan þriggja ára samning við sænska liðið Sundsvall Dragons.

Jakob hefur verið í herbúðum liðsins síðustu þrjú ár og verið í algjöru lykilhlutverki. Drekarnir urðu sænskir meistarar árið 2011.

Íþróttastjóri Sundsvall segir það vera frábær tíðindi að félagið hafi náð að semja við Jakob enda sé hann frábær íþróttamaður og einnig mikil og góð fyrirmynd.

Íslendingar eru augljóslega í miklum metum í Sundsvall því með liðinu leika einnig Hlynur Bæringsson og Pavel Ermolinskij. Þjálfari liðsins er einnig þjálfari íslenska landsliðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×