Handbolti

Hinn íslenskættaði Gísli spáir AG sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Köln skrifar
Blaðamaður Vísis rakst á hóp stuðningsmanna danska liðsins AG fyrir utan Lanxess-höllina í Köln og tók einn þeirra, Gísla, tali.

Gísli á eins og nafn hans gefur til kynna ættir að rekja til Íslands. Hann á von á spennandi leik gegn Atletico í dag en þá mætast liðin í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.

„Það eru litlu hlutirnir í handbolta sem skipta máli en ég á von á að AG vinni. Atletico mun vanmeta AG," sagði Gísli meðal annars en viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.

„Íslendingarnir í AG eru frábærir og þetta er í raun hálfíslenskt og hálfdanskt lið," bætti hann við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×