Körfubolti

Barcelona lagði Real Madrid með flautuþristi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Marcelinho Huertas var hetja Barcelona sem lagði Real Madrid í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni ABC-deildarinnar á Spáni í gærkvöldi.

Real Madrid leiddi með tveimur stigum en leikmaður liðsins hitti ekki úr þriggja stiga skoti fimm sekúndum fyrir leikslok. Barcelona menn brunuðu upp og Huertas skoraði magnaða þriggja stiga körfu í þann mund sem leiktíminn rann út.

Spjaldið ofan í og heimamenn í Barcelona ærðust af gleði. Körfuna og gleðina má sjá í myndskeiðinu hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×