Körfubolti

LA Lakers heldur áfram að styrkja liðið

Antawn Jamison og Pau Gasol verða liðsfélagar á næstu leiktíð.
Antawn Jamison og Pau Gasol verða liðsfélagar á næstu leiktíð. AP
Hinn þaulreyndi leikmaður Antawn Jamison hefur samið við LA Lakers og er samningurinn til eins árs. Framherjinn, sem er 36 ára gamall, var í aðalhlutverki hjá Cleveland Cavaliers en hann hefur einnig leikið með Washington Wizards. Jamison hefur aldrei unnið NBA titil á ferlinum og er hann í sömu stöðu og kanadíski leikstjórnandinn Steve Nash sem hefur einnig samið við Lakers.

Kobe Bryant, aðalstjarna LA Lakers, var ekki sáttur við leikmannahópinn sem liðið hafði á að skipa á síðustu leiktíð og hafa forráðamenn liðsins verið duglegir á leikmannamarkaðinum í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×