Handbolti

Auðvelt hjá Füchse Berlin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Füchse Berlin, lið Dags Sigurðssonar, er enn með fullt hús stiga eftir sigur á nýliðum Neuhausen í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld, 29-22.

Füchse Berlin hefur nú mætt báðum nýliðunum í fyrstu tveimur umferðum tímabilsins en um síðustu helgi vann liðið sigur á Minden.

Þetta var fyrsti leikurinn í annarri umferð og er því Füchse Berlin sem stendur á toppi deildarinnar.

Hornamaðurinn Ivan Nincevic var markahæsti leikmaður Berlínarliðsins í kvöld með níu mörk en næstur kom Rússinn Konstantin Igropulo með sex mörk. Hann var fenginn frá Barcelona til að fylla í skarð Alexanders Peterssonar sem fór til Rhein-Neckar Löwen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×