Körfubolti

Pavel ekki með Íslandi gegn Svartfellingum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Pavel í fyrsta leik Íslands gegn Serbíu.
Pavel í fyrsta leik Íslands gegn Serbíu. Mynd/Anton
Íslenska landsliðið í körfuknattleik mætir Svartfellingum í undankeppni Evrópumótsins í kvöld. Íslenska liðið verður án Pavel Ermolinskij í leiknum.

Pavel meiddist á nára í upphitun fyrir leik Slóvakíu og Íslands ytra um síðustu helgi og tók hvorki þátt í þeim leik né tapinu gegn Ísrael í vikunni.

Hann ferðaðist ekki með liðinu til Svartfjallalands en óvíst er hvort hann verði leikfær þegar Ísland mætir Eistlendingum á mánudagskvöldið.

Leikur Svartfjallalands og Íslands hefst klukkan 18.30 í dag. Hægt er að fylgjast með honum í beinni tölfræðilýsingu á heimasíðu Körfuknattleikssambandsins, KKI.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×