Handbolti

Atli Ævar með fimm mörk í sigri SönderjyskE

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Atli Ævar Ingólfsson.
Atli Ævar Ingólfsson. Mynd/Valli
SönderjyskE er að byrja ágætlega í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta og hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum. SönderjyskE vann 31-29 heimasigur á TMS Ringsted í dag.

Atli Ævar Ingólfsson skoraði fimm mörk fyrir SönderjyskE í leiknum en Anton Rúnarsson komst ekki á blað. SönderjyskE var með fimm marka forskot í hálfleik, 17-12.

Einar Ingi Hrafnsson skoraði eitt mark fyrir Mors-Thy Håndbold þegar liðið tapaði 24-27 á útivelli á móti Ribe-Esbjerg HH. Mors-Thy HB vann góðan sigur á Viborg HK í eina heimaleik tímabilsins en hefur tapað báðum útileikjunum.

KIF Kaupmannahöfn vann á sama tíma 30-19 heimasigur á Skjern Håndbold. Kim Andersson var markahæstur með 8 mörk en Lasse Boesen skoraði 5 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×