Handbolti

Valur fór létt með Valencia

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Daníel
Valur er komið áfram í þriðju umferð EHF-bikarkeppni kvenna í handbolta eftir stórsigur á spænska liðinu Valencia í dag.

Valur vann síðari leik liðanna í dag með tólf mörkum, 37-25, og samanlagt 64-47. Báðir leikirnir fóru fram ytra.

Þorgerður Anna Atladóttir og Anna Úrsúla Guðmundsdóttir skoruðu sjö mörk hvor fyrir Val í dag. Karólína B. Lárudóttir skoraði sex mörk og Rebekka Rut Skúladóttir fjögur.

Liðið mætir HC Zalau frá Rúmeníu í næstu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×