Handbolti

Sannfærandi hjá Slóveníu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / AFP
Slóvenía er komið á blað í riðli Íslands í undankeppni EM 2014 í handbolta eftir átta marka sigur á Rúmeníu á heimavelli, 34-26.

Auk Íslands er Hvíta-Rússland einnig í riðlinum en tvö efstu liðin komast áfram í úrslitakeppni EM sem fer fram í Danmörku snemma árs 2014.

Ísland mætir Rúmeníu á útivelli á sunnudaginn klukkan 14.00. Þann sama dag taka Hvít-Rússar á móti Slóvenum.

Þess má geta að Siarhei Rutenka, leikmaður Hvít-Rússa, lék um tíma með slóvenska landsliðinu. Hann sneri þó aftur til síns heima árið 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×