Körfubolti

Hörður Axel með mikilvæga þrista í lokin í naumum útisigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hörður Axel Vilhjálmsson.
Hörður Axel Vilhjálmsson. Mynd/Daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson átti fínan leik með Mitteldeutscher BC í þýska körfuboltanum í kvöld þegar liðið vann 76-70 útisigur á New Yorker Phantoms Braunschweig í spennuleik í þýsku úrvalsdeildinni.

Hörður Axel spilaði í rúmar 22 mínútur í leiknum og var með 9 stig, 3 stoðsendingar og 2 stolna bolta. Liðið vann með 13 stigum þann tíma sem hann var inn á vellinum en tapaði með sjö stigum þegar hann var á bekknum.

Hörður Axel hitti úr 3 af 6 þriggja stiga skotum sínum í kvöld og enginn annar leikmaður liðsins skoraði fleiri þrista en hann í þessum leik.

Hörður Axel kom sínu liði í sex stiga forystu, 69-63, með því að setja niður tvo þrista með 34 sekúndna millibili um miðjan fjórða leikhlutann en Mitteldeutscher tryggði sér sigur í leiknum með því að vinna lokaleikhlutann 19-7.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×