Handbolti

Aron: Sveinbjörn valinn þar sem hann er reynslumeiri

Það vakti talsverða athygli að Aron Kristjánsson, landsliðsþjálfari í handbolta, skyldi velja markvörðinn Sveinbjörn Pétursson í landsliðshópinn í gær í stað þess að halda sig við Daníel Frey Andrésson sem var upprunalega valinn í hópinn.

Hreiðar Levý Guðmundsson er veikur og óljóst hvort hann geti spilað með liðinu. Þess vegna var hóað í Sveinbjörn og hann kom til móts við liðið í Þýskalandi.

Fréttastofa náði tali af Aroni fyrr í dag þar sem hann var staddur á flugvellinum í Frankfurt.

"Ég vel Sveinbjörn í hópinn út af reynslu. Hann er þegar búinn að spila þrjá landsleiki og leikur úti í Þýskalandi þar sem hann hefur staðið sig vel. Hann er því með meiri alþjóðlega reynslu en Daníel," sagði Aron og bætti við.

"Þetta þýðir alls ekki að Daníel sé úr myndinni hjá mér. Hann hefur staðið sig vel og er framtíðarmaður."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×