Fótbolti

Eyjólfur skoraði en engin stig til SönderjyskE

Eyjólfur í leik með SönderjyskE.
Eyjólfur í leik með SönderjyskE.
Mark Eyjólfs Héðinssonar fyrir SönderjyskE gegn Silkeborg í dag dugði ekki til því Silkeborg vann flottan útisigur, 2-3.

Eyjólfur kom sínu liði í 2-1 en það reyndist skammgóður vermir. Eyjólfur lék allan leikinn fyrir sitt lið sem og Hallgrímur Jónasson.

Bjarni Þór Viðarsson spilaði síðustu tvær mínútur leiksins fyrir Silkeborg.

Silkeborg komst með sigrinum upp úr botnsæti deildarinnar en SönderjyskE er í níunda sæti dönsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×