Handbolti

Róbert með fjögur mörk í naumum sigri PSG

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Róbert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson. Mynd/AFP
Paris Saint-Germain mátti þakka fyrir nauman tveggja marka heimasigur á US Créteil, 30-28, í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld en fyrir leikinn mundaði tólf sætum og ellefu stigum á liðunum tveimur.

Róbert Gunnarsson skoraði fjögur mörk úr fimm skotum hjá PSG og Ásgeir Örn Hallgrímsson nýtti eina skotið sitt. Króatinn Marko Kopljar var markahæstur með sjö mörk en liðið lék án Danans Mikkel Hansen í þessum leik.

PSG var 16-15 yfir í hálfleik en Créteil komst þremur mörkum yfir, 23-26, þegar ellefu mínútur voru eftir af leiknum. Parísar-liðið skoraði fjögur næstu mörk og svo þrjú síðustu mörk leiksins eftir að Créteil komst í 27-28 þegar fjórar og hálf mínúta var eftir.

Paris Saint-Germain hefur unnið alla níu leiki sína í frönsku úrvalsdeildinni til þessa og er með þriggja stiga forskot á Chambéry.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×