Handbolti

Djuric fingurbrotinn og spilar ekki meira á árinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristinn Guðmundsson, þjálfari HK.
Kristinn Guðmundsson, þjálfari HK. Mynd/Daníel
HK varð fyrir öðru áfalli á skömmum tíma þegar að Vladimir Djuric fingurbrotnaði. Hann verður frá keppni fram yfir áramót en þetta kom fram í Morgunblaðinu í dag.

Fyrir stuttu var greint frá því að Bjarki Már Elísson verði frá næstu 6-8 vikurnar vegna meiðsla og því ljóst að báðir leikmenn spila ekki með liðinu á ný fyrr en eftir heimsmeistaramótið á Spáni.

Djuric náði aðeins að spila tvo leiki með HK í haust en hann skoraði í þeim sex mörk. HK er í sjöunda sæti N1-deildar karla með fimm stig en liðið hefur tapað fjórum leikjum í röð. HK-ingar mæta Val á útivelli á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×