Handbolti

Rut og Þórey með átta mörk saman

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Ole Nielsen
Landsliðskonurnar Rut Jónsdóttur og Þórey Rósa Stefánsdóttir áttu báðar fínan leik þegar lið þeirra Team Tvis Holstebro vann sannfærandi 19 marka heimasigur á Slagelse, 41-22, í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Ann Grete Nørgaard og Mette Gravholt voru markahæstar hjá Team Tvis Holstebro með sex mörk hvor en næstar komu íslensku stelpurnar sem skoruðu báðar fjögur mörk í þessum leik.

Team Tvis Holstebro var 21-11 yfir í hálfleik og vann þarna sinn þriðja sigur í röð. Liðið er í 4. sæti deildarinnar fimm stigum á eftir toppliði Viborg.



Team Tvis Holstebro – Slagelse FH 41-22 (21-11)

Team Tvis Holstebro: Ann Grete Nørgaard 6, Mette Gravholt 6, Rut Jónsdóttir 4, Þórey Rósa Stefánsdóttir 4, Louise Burgaard 4, Betina Kjær 4, Kristina Kristiansen 4, Anna Loerper 2, Katrine Heindahl 2, Sofie Blichert-Toft 2, Iwona Niedzwiedz 2, Stine Andersen 1.

Slagelse FH: Nanna Willumsen 7, Malwina Leskiewicz 3, Tanja Laursen 3, Maria Krøyer 3, Sascha Westerberg 2, Katja Marcher Laursen 1, Tatiana Bennedsen 1, Camilla Pihl 1, Roxanne Bovenberg 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×