Körfubolti

61 stig dugði Pavel og félögum til sigurs

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pavel Ermolinskij var stigahæstur þegar að Norrköping Dolphins vann sigur á Stockholm Eagles, 61-50, í sænsku úrvlasdeildinni í kvöld.

Eins og sjá má á lokatölunum var heldur lítið skorað í leiknum. Staðan í hálfleik var 31-18, Norrköping í vil, en Pavel dugðu tólf stig til að vera stigahæstur í sínu liði.

Pavel tók þar að auki níu fráköst í leiknum og gaf þrjár stoðsendingar.

Þá vann Sundsvall Dragons öruggan sigur á Örebro, 108-82. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 23 stig fyrir Sundsvall stigahæstur í sínu liði. Þá skoraði Hlynur Bæringsson níu stig auk þess að taka sex fráköst og gefa sex stoðsendingar.

Sundsvall er í efsta sæti deildarinnar með 22 stig en Norrköping í þriðja sæti með sextán.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×