Körfubolti

Helena fékk fáar mínútur en nýtti þær vel

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Good Angels frá Kosice í Slóvakíu vann í kvöld góðan sigur á ítalska liðinu Famila Schio í Evrópudeild kvenna í körfubolta, 79-69.

Helena fékk átta mínútur í leiknum og skoraði tvö stig. Hún nýtti eina skotið sitt í leiknum auk þess að taka tvö fráköst og gefa eina stoðsendingu.

Þetta var þriðji sigur Good Angels í röð og er liðið í öðru sæti B-riðils. Helena átti frábæran fyrir tveimur vikum síðan þegar hún skoraði sautján stig og tók sjö fráköst í naumum sigri á franska liðinu Arras.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×