Handbolti

Paris enn með fullt hús stiga

Róbert skoraði eitt mark fyrir Paris.
Róbert skoraði eitt mark fyrir Paris.
Paris Handball er enn ósigrað á toppi frönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir öruggan 26-18 sigur á Billere Handball á útivelli í dag.

Paris hefur unnið alla ellefu leiki sína í deildinni en Billere er án stiga á botni deildarinnar.

Lítið fór fyrir íslensku leikmönnum Paris í leiknum. Róbert Gunnarsson skoraði eitt mark og Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×