Körfubolti

Helena skoraði fimm stig í Evrópusigri

Góðu englarnir frá Kosice eru komnir á topp síns riðils í Evrópudeild kvenna eftir góðan útisigur, 64-69 á UE Sopron í kvöld.

Helena Sverrisdóttir fékk að spila mikið í kvöld eða 19 mínútur. Hún skoraði fimm stig í leiknum.

Setti niður eitt af þrem þriggja stiga skotum sínum og skoraði líka úr sínu eina skoti í teignum. Helena tók þess utan fimm fráköst og gaf eina stoðsendingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×