Handbolti

Snorri Steinn og félagar aftur á sigurbraut

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Snorri Steinn Guðjónsson.
Snorri Steinn Guðjónsson. Mynd/Diener
Snorri Steinn Guðjónsson og félagar í GOG Håndbold unnu sex marka sigur á Holte, 25-19, í dönsku b-deildinni í handbolta í dag en GoG er áfram með öruggt forskot á toppi deildarinnar. Holte er í 11. sæti.

GOG vann þrettán fyrstu leiki sína á tímabilinu en tapaði síðan fyrir Lemvig-Thyborøn Håndbold um síðustu helgi. Lemvig-Thyborøn Håndbold er í 3. sæti deildarinnar fimm stigum á eftir GOG.

Snorri Steinn Guðjónsson skoraði eitt mark í leiknum en markahæsti leikmaður liðsins var Minik Dahl Høegh með fimm mörk. GOG var 13-9 yfir í hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×