Körfubolti

Pavel góður í sigri Norrköping

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pavel Ermolinskij.
Pavel Ermolinskij. Mynd/Anton
Pavel Ermolinskij átti fínan alhliða leik í tuttugu stiga útisigri Norrköping Dolphins á Jämtland Basket, 91-71, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Norrköping komst þar aftur á sigurbraut eftir tvö deildartöp í röð.

Norrköping var sex stigum undir eftir fyrsta leikhlutann, 12-18, en tók völdin í öðrum leikhluta og Pavel og félagar litu aldrei til baka eftir það.

Pavel var með 13 stig, 8 fráköst og 6 stoðsendingar í leiknum en hann nýtti 6 af 8 skotum sínum í leiknum og var einnig með 4 stolna bolta.

Pavel var bæði sá sem tók flest fráköst og gaf flestar stoðsendingar hjá Norrköping og aðeins einn leikmaður liðsins skoraði fleiri stig en hann í kvöld.

Norrköping Dolphins styrkti stöðu sína í fjórða sæti deildarinnar með þessum sigri en með tapi hefði liðið hugsanlega dottið niður í fimmta sætið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×