Körfubolti

Drekarnir verða á toppnum yfir jólin

Jakob og Hlynur.
Jakob og Hlynur. mynd/valli
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons styrkti stöðu sína á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik í kvöld með góðum heimasigri og verður því á toppnum yfir jólin.

Sundsvall vann þá þægilegan sigur, 102-98, á LF Basket. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 18 stig fyrir Sundsvall í kvöld og gaf þrjár stoðsendingar. Hlynur Bæringsson skoraði 7 stig og tók heil 13 fráköst ásamt því að gefa 3 stoðsendingar.

Pavel Ermolinskij og félagar í Norrköping Dolphins verða í fjórða sæti yfir jólin en liðið lagði 08 Stockholm HR, 90-82, í miklum spennuleik. Pavel lék ekki með liðinu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×