Handbolti

Úrslitaleikur í Köben

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Aron mætir fjórum félögum úr landsliðinu í Köben í dag.
Aron mætir fjórum félögum úr landsliðinu í Köben í dag.
Það fer fram afar áhugaverður handboltaleikur í Kaupmannahöfn á morgun þegar Íslendingaliðin AG og Kiel mætast.

Þetta er lokaleikur liðanna í D-riðli en Kiel er í efsta sæti riðilsins með einu stigi meira en AG. Þetta er því hreinn úrslitaleikur um efsta sætið í riðlinum.

Það er löngu orðið uppselt á leikinn sem fram fer í Boozt.com-höllinni en forráðamenn AG segja að þeir hefðu vel getað fyllt Parken hefðu þeir farið með leikinn þangað.

Arnór Atlason, Ólafur Stefánsson, Guðjón Valur Sigurðsson og Snorri Steinn Guðjónsson verða allir í liði AG og Aron Pálmarsson verður með Kiel sem Alfreð Gíslason þjálfar.

Leikurinn hefst klukkan 16.00 og er í beinni útsendingu á Sporttv.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×