Handbolti

Róbert: Erum með alla nema Lexa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Róbert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson. Mynd/Vilhelm
Róbert Gunnarsson, línumaður íslenska landsliðsins, verður í sviðsljósinu í Króatíu.

„Þetta er draumur okkar allra og að ég held allra íþróttamanna að komast á Ólympíuleikana. Nú er bara að taka þessa páskaviku á fullu, vera grimmir þarna úti og klára þetta verkefni. Þetta eru lið sem við eigum að klára en við þurfum samt að hafa fyrir því. Við megum ekkert mæta þarna með nefið upp í loftið og halda að við séum bestir," segir Róbert.

„Við vitum það að við eigum að klára þetta en við getum alveg tapað fyrir öllum þessum liðum. Ef við náum að stilla okkur sjálfa af þá hef ég engar áhyggjur," segir Róbert sem fagnar endurkomu Ólafs Stefánssonar og Snorra Steins Guðjónssonar. „Það er gríðarlega gaman að fá Óla og Snorra aftur inn. Við erum með alla nema Lexa sem er frábært," segir Róbert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×