Handbolti

Þórir samdi við Kielce á ný

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Stefán
Þórir Ólafsson hefur framlengt samning sinn við pólska úrvalsdeildarfélagið KS Vive Targi Kielce um eitt ár, til loka tímabilsins 2014.

Þórir er nú á leið til Spánar með íslenska landsliðinu en HM hefst þar í landi á föstudaginn. Ísland á fyrst leik gegn Rússlandi á laugardag.

Selfyssingurinn Þórir hélt í atvinnumennsku árið 2005 og var í sex ár hjá Lübbecke í Þýskalandi, áður en hann samdi við Kielce árið 2011. Hann varð pólskur bikarmeistari með liðinu í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×