Körfubolti

Helena og félagar bikarmeistarar í Slóvakíu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Heimasíða Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir og félagar í Good Angels Kosice tryggðu sér slóvakíska bikarmeistaratitilinn í körfubolta í kvöld með 76-58 sigri á MBK Ruzomberok í úrslitaleik. Þetta er þriðji stóri titilinn sem Helena vinnur með slóvakíska félaginu en liðið vann tvöfalt á hennar fyrsta tímabili í fyrra.

Helena skoraði átta stig í úrslitaleiknum en stigaskor liðsins dreifðist mikið og aðeins tveir leikmenn Good Angels Kosice skoruðu meira en Helena í úrslitaleiknum. Ungverski framherjinn Tijana Krivacevic skoraði 16 stig og bandaríski bakvörðurinn Allie Quigley var með 15 stig.

Þetta er í fjórða sinn á ferlinum sem Helena verður bikarmeistari því hún vann bikarinn tvisvar sinnum með Haukaliðinu (2005 og 2007) áður en hún fór út í nám til Bandaríkjanna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×