Körfubolti

Hörður Axel og félagar töpuðu naumlega fyrir toppliðinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hörður Axel Vilhjálmsson.
Hörður Axel Vilhjálmsson. Mynd/Stefán
Hörður Axel Vilhjálmsson og félagar í Mitteldeutscher BC þurftu að sætta sig við naumt tap á heimavelli á móti toppliði Brose Baskets, 56-58, í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Mitteldeutscher BC skoraði tvær síðustu körfur leiksins og fékk ekki á sig stig síðustu tvær mínútur og fjórtán sekúndur leiksins en tókst ekki að jafna leikinn á lokasekúndunum.

Liðið fékk tvö skot í lokasókninni en þau klikkuðu bæði. Hörður Axel tók hvorugt þeirra enda búinn að vera ískaldur í leiknum.

Hörður Axel var í byrjunarliðinu og skoraði 3 stig á 22 mínútum. Öll stig hans komu af vítalínunni en hann klikkaði á öllum níu skotum sínum utan af velli. Hörður var líka með tvö fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×