Körfubolti

Helena öflug í góðum sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena í leik með Good Angels.
Helena í leik með Good Angels.
Helena Sverrisdóttir skoraði ellefu stig þegar að Good Angels Kosice vann góðan sigur á ítalska liðinu Famila Schio í Evrópudeild kvenna í kvöld.

Helena tók þar að auki sjö fráköst og gaf tvær stoðsendingar á 21 mínútu. Hún nýtti fimm af sjö skotum sínum utan af velli.

Þetta var fimmti sigur Good Angels í röð í Evrópudeildinni en liðið deilir nú toppsæti B-riðils með Fenerbahce frá Tyrklandi. Bæði lið hafa unnið átta leiki af tíu til þessa.

Helena hefur skorað 6,9 stig að meðaltali í deildinni í vetur og tekið að meðaltali fjögur fráköst. Leikurinn í kvöld var einn hennar besti í keppninni en mest hefur hún skorað sautján stig í einum leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×