Handbolti

Sex leikja bann fyrir veðmálasvindl

Nikola Karabatic.
Nikola Karabatic.
Einn besti handboltamaður heims, Frakkinn Nikola Karabatic, og sex aðrir leikmenn voru í gær úrskurðaðir í sex leikja bann vegna veðmálahneykslisins sem tröllreið öllu síðari hluta 2012.

Þá voru allir þessir leikmenn á mála hjá Montpellier. Aðstandendur þeirra höfðu veðjað á tap liðsins gegn einu lélegasta liði frönsku deildarinnar í lokaumferð deildarkeppninnar.

Málið hefur dregið dilk á eftir sér og aðeins tveir þeirra spila enn með Montpellier.

Leikmennirnir hefðu í versta falli getað fengið fangelsisdóm vegna málsins en sleppa með leikbannið.

Ásamt Karabatic var bróðir hans Luka dæmdur sem og Túnisbúinn Issam Tej, Slóvenarnir Dragan Gajic og Primoz Prost, Frakkinn Samuel Honrubia og Serbinn Mladen Bojinovic.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×