Handbolti

Björgvin Páll og félagar steinlágu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Hamburg vann í kvöld tólf marka stórsigur á Magdeburg, 31-19, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta. Björgvin Páll Gústavsson, markvörður Magdeburg, spilaði í leiknum en kom ekki í veg fyrir tap.

Það varð snemma ljós í hvað stefndi en Hamburg komst sex mörkum yfir, 9-3, eftir aðeins stundarfjórðung. Markahæstur í liði Hamburg var danski landsliðsmaðurinn Hans Lindberg með níu mörk.

Hamburg er í fimmta sæti deildarinnar með 28 stig en Magdeburg í því áttunda með 22 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×