Körfubolti

Jakob með stórleik í sigri Sundsvall

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Valli
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 31 stig þegar að lið hans, Sundsvall Dragons, vann sex stiga sigur á Örebro á útivelli, 82-76.

Jakob spilaði í tæpar 42 mínútur og nýtti alls níu af sextán skotum sínum utan af velli. Hann tók ellefu vítaköst og klikkaði á aðeins tveimur í leiknum.

Þá tók hann fimm fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Hlynur Bæringsson átti einnig flottan leik en hann skoraði ellefu stig, tók átta fráköst og gaf fimm stoðsendingar.

Sundvall er sem fyrr á toppi deildarinnar en liðið er með 46 stig, fjórum meira en Uppsala sem er í öðru sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×